Drífa keramik
  • Heim / Home
  • Verslun / Shop
  • Námskeið
  • Fréttir
  • Um Drífu / About Drífa

Upplifun #1 fyrir hópa

Boðið er upp á einstaka upplifun fyrir hópa, til dæmis vinahópa, vinnustaðahópa og fjölskylduhópa. Fjallað er um leirinn á léttum nótum, sýnt hvernig leir er renndur og það mun gefast tími fyrir 2 - 3 úr hópnum að prófa. Frábær vettvangur fyrir hópefli og skemmtilega stemmingu. Boðið er upp á kaffi og gos en velkomið að skoða nánar með frekari veitingar í huga.

Alla jafnan er gert ráð fyrir tveimur klukkustundum, verð per mann 2.000 kr. fyrir 10 - 12 manna hóp. Verðið er hærra per mann fyrir minni hópa.

Haldið á Keramikvinnustofu Drífu, Þórsvöllum 7 í Reykjanesbæ.
Vinsamlegast hafið samband í síma 866 4245 eða með tölvupósti til drifa@drifakeramik.is



​Upplifun #2 fyrir hópa

Boðið er upp á einstaka upplifun fyrir hópa, til dæmis vinahópa, vinnustaðahópa og fjölskylduhópa. Fjallað er um leirinn á léttum nótum og sýnt hvernig leir er renndur. Allir fá að renna.
 Frábær vettvangur fyrir hópefli og skemmtilega stemmingu. Boðið er upp á kaffi og gos en velkomið að skoða nánar með frekari veitingar í huga.

Ef gert er ráð fyrir tveimur klukkustundum, þá er verð per mann 4.000 kr. Hámarksfjöldi er 7 manns.

Haldið á Keramikvinnustofu Drífu, Þórsvöllum 7 í Reykjanesbæ.
Vinsamlegast hafið samband í síma 866 4245 eða með tölvupósti til drifa@drifakeramik.is

​


Vinnustofa

Þórsvellir 7, 230 Reykjanesbæ

Sími

+354 866 4245

Netfang

​drifa@drifakeramik.is
  • Heim / Home
  • Verslun / Shop
  • Námskeið
  • Fréttir
  • Um Drífu / About Drífa